Warning Cookies are used on this site to provide the best user experience. If you continue, we assume that you agree to receive cookies from this site. OK

Skilmálar

Almennt

Vefverslunin galleryspuni.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef villur í útreikningum vefverslunnarinnar eiga sér stað.

Afhending vöru
Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti. Sendingarkostnaður er reiknaður út frá gjaldskrá Íslandspósts með tilliti til áfangastaðar og fjölda vara, stærð þeirra og þyngd. Reynt er eftir fremsta megni að afgreiða allar pantanir næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vöru frá Íslandspósti. Skilmálar Íslandspósts eru aðgengilegir á vefsíðu þeirra. Vefverslunin galleryspuni.is ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi Íslandspósts. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Gallery Spuna Ehf. og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila.

Skilafrestur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Hér má lesa nánari upplýsingar um skilareglur.

Rafbækur og aðrar rafrænar vörur
Öll kaup á vörum sem eru afhentar rafrænt (með niðurhalshlekk) eru endanleg um leið og greitt hefur verið fyrir vöruna. Slíkar vörur fást ekki endurgreiddar nema ef um gallaða/skemmda vöru er að ræða.

Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan kostnað sem gæti komið upp við sendingu.

Netverð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Tilboð í vefverslun gilda í sumum tilfellum eingöngu fyrir vefverslun. Með sama hætti gilda tilboð í Verslun Gallery Spuna Ehf í Hamraborg 5 ekki alltaf í vefverslun. Öll verð eru með VSK nema annað sé tekið fram.


Skattar og gjöld

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK. Sama á við um sendingarkostnað og aðra þjónustu sem kann að verða veitt reikningar eru gefnir út með VSK.


Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Notkun á persónuupplýsingum
Sendingar úr kerfi Vefverslunar galleryspuni.is kunna að nota persónuupplýsingar, s.s. búsetu, aldur eða viðskiptasögu, til að senda skilaboð til meðlima síðunnar. Þessar upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila. Viðskiptavinir vefverslunnarinnar geta ætíð afskráð sig og þannig neitað fyrirtækinu um notkun á slíkum upplýsingum.

Varnarþing
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur eða öðrum íslenskum dómstóli.

Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru hefur átt sér stað.