Mjúkt, létt og fullt af lykkjum!
Innihald: 80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
Garnflokkur: C (16 - 19 lykkjur) / 10 ply / aran
Þyngd/lengd: 50 g = ca. 140 metrar
Mælt með prjónastærð: 5 mm
Prjónfesta: 10 x 10 cm = 17 l x 22 umf
Þvoið í höndunum, hámark 30°C / Leggið flíkina flata til þerris / Hentugt til þæfingar
Finna mynstur fyrir DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé er mjúkt og yndislegt garn með ójafnri áferð spunnið úr alpakka. Trefjarnar í garninu eru ómeðhöndlaðar, sem þýðir að þær eru einungis þvegnar og hafa ekki verið meðhöndlaðar með neinum kemískum efnum fyrir litun. Með þessu er haldið utan um gæði og eiginleika trefjanna jafnframt sem þetta gefur betri lögun og áferð.
“Bouclé” er franska orðið yfir lykkja og vísar til allra þeirra smáu lykkja sem eru í hreinni alpakka sem gefur garninu sérstakt útlit og upphefur mýkt trefjanna. Garnið er spunnið með 2-þráðum þar sem bindiþráðurinn er blanda af ull og nylon sem styrkir bandið. Flíkur úr DROPS Alpaca Bouclé eru léttar og loftkenndar.
DROPS Alpaca Bouclé inniheldur nokkra blandaða liti, sem þýðir að mismunandi litir ullarinnar eru kembdir saman fyrir spuna, útkoman verður blönduð litasamsetning.
Made in Peru